flugfréttir
Emirates fagnar 10 ára rekstrarafmæli Airbus A380
Þrjár af Airbus A380 risaþotum Emirates á flugvellinum í Dubai
Emirates fagnaði því í gær að hafa haft Airbus A380 risaþotuna í flota sínum í heilan áratug.
Emirates hefur í dag 104 Airbus A380 risaþotur í flota sínum og er þeim flogið til 49 borga í sex heimsálfum
en sl. 10 ár hafa risaþotur Emirates flogið 115.000 flugferðir sem samsvarar 39.000 flugferðum hringinn í kringum
jörðina.
Ekkert flugfélag í heiminum hefur eins margar Airbus A380 risaþotur líkt og Emirates sem hefur helminginn
af öllum þeim A380 þotum sem framleiddar hafa verið.
Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að farþegar elska að fljúga með Airbus A380 þar sem hún er mjög rúmgóð
flugvél og hefur meðal annar sturtu um borð en sturtan fylgir þó aðeins þeim farþegum sem ferðast um
á First Class.
Emirates fékk fyrstu risaþotuna formlega afhenta þann 28. júlí árið 2008 við hátíðlega athöfn sem fram fór
í Hamborg.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.