flugfréttir
Saudi Arabian ákveður að hætta öllu flugi til Kanada
Saudi Arabian hafði flogið til Toronto með Dreamliner-þotum
Sádí-arabíska flugfélagið Saudi Arabian Airlines hefur ákveðið að hætta að fljúga til Kanada vegna deilna við kanadísk stjórnvöld sem spruttu upp í kjölfar handtöku nokkurra kvenna í Sádí-Arabíu sem ferðuðust þangað á vegum kvennahreyfingar.
Pólitískar deilur milli landanna hófust á því að forsætisráðherra Kanada lýsti yfir áhyggjum sínum eftir að nokkrar
vestrænar konur voru handteknar í Sádí-Arabíu er þær ferðuðust þangað á sama tíma og Haji-tímabilið er að hefjast
þar sem milljónir pílagríma ferðast til borgarinnar Mekka.
Nokkrir kanadískir stjórnmálamenn hafa fordæmt handtökuna á konunum en stjórnvöld í Sádí-Arabíu segja að þær
hafi einungis komið til landsins með þeim tilgangi að dreifa áróðri gagnvart „karlaveldinu“ í landinu.
Ríkisflugfélagið Saudi Arabian hefur ákveðið að fella niður allt flug til og frá Toronto sem er eini áfangastaður félagsins
í Kanada en félagið flýgur þangað frá Riyadh.
Deilurnar milli landanna sl. daga hafa orðið það harkalegar að stjórnvöld í Sádí-Arabíu hafa ákveðið að slíta einnig á öll viðskiptatengsl við Kanada.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.