flugfréttir

Fjölgun breiðþotna til Nepal veldur skemmdum á flugbraut

- Biðja flugfélög um að fljúga minni flugvélum til flugvallarins ef hægt er

11. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:33

Frá Tribhuvan-flugvellinum í Kathmandu í Nepal

Flugmálayfirvöld í Nepal hafa töluverðar áhyggjur af skemmdum sem farnar eru að myndast í yfirlagi á flugbrautinni á Tribhuvan-flugvellinum í Kathmandu vegna mikillar aukningar á breiðþotum sem fljúga til vallarins.

Þau flugfélög, sem fljúga til Kathmandu, eru hvött til þess að fækka flugferðum með breiðþotum til Nepal og er farið fram á að þau noti smærri flugvélar ef möguleiki er á.

„Við höfum óskað eftir því að erlend flugfélög fljúgi hingað með minni þotum sem koma með einum gangi þangað til að yfirlag brautarinnar hefur gengist undir endurnýjun“, segir Murari Bhandari hjá stjórn flugvallarins.

Um 30 erlend flugfélög fljúga reglulega til Kathmandu og eiga sér stað um 90 flugtök og lendingar á hverjum degi á Tribhuvan-flugvellinum en meðal stærstu flugvélanna sem fljúga um völlinn eru þotur af gerðinni Boeing 777 og Airbus A330.

Aukið breiðþotuflug um völlinn hefur aukið álagið á flugbrautinni þar sem meiri þrýstingur kemur á yfirlagið hverju sinni sem hefur orsakað að sprungur hafa myndast sem stækka og enda sem skemmdir.

Meðal flugfélag sem fljúga breiðþotum til Kathmandu er Korean Air sem notar Boeing 777-200 þotur til flugsins auk Thai Airways sem einnig flýgur til Nepal með Boeing 777 og þá notar Turkish Airlines Airbus A330-300 til flugsins.

Skemmdir á akbrautinni á flugvellinum í Kathmandu







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga