flugfréttir
Biman fær sína fyrstu Dreamliner-þotu
Fyrsta Boeing 787 þota Biman Bangladesh var afhent til félagsins um helgina
Flugfélagið Biman Bangladesh hefur fengið afhenta sína fyrstu Dreamliner-þotu sem er af gerðinni Boeing 787-8.
Þetta er fyrsta þotan af þeim fjórum sem Biman Bangladesh pantaði á sínum tíma og lagði hún af stað í afhendingarflugið
frá verksmiðjum Boeing í Everett þann 18. ágúst sl.
Önnur Boeing 787-8 verður afhent í nóvember, sú þriðja í október árið 2019 og sú fjórða í nóvember 2019.
Biman mun hefja áætlunarflug með fyrstu þotuna þann 1. september frá Dhaka til Kuala Lumpur og Singapore
en síðar í haust verður hún einnig notuð í áætlunarflug til Doha, Chittagong og til Muscat.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.