flugfréttir
Missti stjórn í flugtaki við að loka hlífinni yfir stjórnklefann
Á vettvangi við flugvöllinn í Pekin í Illinois þann 16. ágúst árið 2016
Lítil flugvél af gerðinni Collins RV-6A brotlenti rétt eftir flugtak í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum síðan en orsökin er rakin til þess að athygli flugmannsins beindist að því að loka hlífinni yfir stjórnklefanum eftir að vélin hóf sig á loft.
Slysið átti sér stað í ágúst árið 2016 á flugvellinum í Pekin í Illinois en flugmaðurinn hafði beðið í 10 mínútur með mótorinn í gangi eftir því að komast í loftið á meðan aðrar flugvélar sem voru á undan voru að hefja sig á loft.
Flugmaðurinn ákvað að opna fyrir hlerann til að gera rifu svo hann gæti fengið ferskt loft inn í stjórnklefann á meðan hann beið þar sem það var vel yfir 30°C stiga hiti úti en
gleymdi að loka kúplinum aftur fyrir flugtak.
Í flugtakinu, þegar vélin var að klifra frá brautinni í ca. 30 feta hæð, opnaðist klefinn skyndilega og greip flugmaðurinn í hlífina til þess að loka
henni en við það truflaðist einbeiting hans með þeim afleiðingum að hann missti stjórn vélinni.
Flughraðinn féll niður í klifrinu og fór hún í ofris og brotlenti á akri nálægt flugvellinum og var hann fluttur alvarlega slasaður
á sjúkrahús.
Niðurstaða samgönguöryggisnefndar Bandaríkjanna (NTSB) er sú að orsök slyssins hafi verið sú að flugmaðurinn gleymdi
að loka hlífinni yfir stjórnklefann fyrir flugtak og náði ekki að einbeita sér að flugtaksklifrinu þar sem hann var að reyna að loka
hleranum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.