flugfréttir
Junkers-flugvélin fór í spíral í kjölfar beygju
- Fyrstu niðurstöður frá rannsóknarnefndinni í Sviss
Flugvélin sem fórst var af gerðinni Junkers Ju-52
Fyrstu niðurstöður úr rannsókn flugslyssins í Sviss er gömul flugvél af gerðinni Junkers Ju-52 fórst þann
4. ágúst sl. benda
til þess að vélin hafi farið í gormflug (spíral) eftir að hún tók beygju til vinstri á of lágum flughraða.
Í tilkynningu frá svissneskri rannsóknarnefnd flugslysa kemur fram að flugvélin hafi verið á stefnu til norðausturs yfir fjalllendi
sem fór hækkandi í 3.100 metra hæð yfir sjávarmáli.
„Flugvélin byrjaði að taka beygju til vinstri sem skyndilega breyttist yfir í spíral og féll hún til jarðar fljótlega eftir það“, kemur
fram í tilkynningu.
Ekki hefur neitt komið í ljós sem bendir til þess að bilun hafi átt sér stað um borð og þá er ekki búið að greina
frá veðurfari á staðnum á þeim tíma sem slysið varð en flugvélin var í sjónflugi á leiðinni frá Locarno til Dubendorf.
Um borð voru 20 manns og komst enginn lífs af.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.