flugfréttir
Air New Zealand pantar sjö A321neo þotur til viðbótar
Tölvugerð mynd af Airbus A321neo í litum Air New Zealand
Air New Zealand hefur gert samkomulag um að panta að minnsta kosti sjö Airbus A321neo þotur til viðbótar.
Vélarnar sjö verða notaðar bæði í innanlandsflugi og í flugi til nærliggjandi áfangastaða á borð við borgir
í Ástralíu og verða þær afhentar frá árinu 2020 til 2024.
Air New Zealand á von á 8 Airbus A321neo þotum á næstunni og mun fjöldi þotna af þessari gerð því telja
alls 15 þotur en félagið á einnig von á níu Airbus A320neo þotum og verður sú fyrsta afhent í desember.
Air New Zealand hefur tilkynnt að félagið ætli að taka á leigu eina Boeing 777-200 þotu sem mun hlaupa
í skarðið á meðan Boeing 787-9 flotinn mun gangast undir skoðun vegna vandamála með Trent 1000
hreyflana.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.