flugfréttir

Elsta Boeing 747-400 þota heims úr umferð í haust

- PH-BFB hefur flogið fyrir KLM síðan árið 1989

23. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:11

„Bangkok“ var afhent til KLM Royal Dutch Airlines árið 1989

Hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines mun í nóvember taka úr umferð elstu núverandi Boeing 747-400 þotu heims en þotan, sem ber skráninguna PH-BFB, hefur verið í notkun í 29 ár.

PH-BFB, sem ber nafnið „Bangkok“, var upphaflega afhent til KLM þann 20. júní árið 1989 en flugfélagið hollenska vinnur nú að því að taka elstu júmbó-þoturnar úr umferð og er að meðaltali ein sem hverfur úr flotanum í hverjum mánuði.

City of Bangkok var önnur Boeing 747-400 þotan sem KLM byrjaði með í rekstri en sú fyrsta var PH-BFA sem nefndist „City of Atlanta“ en sú þota var tekin úr umferð árið 2016 og ferjuð til geymslu á Teruel-flugvellinum á Spáni.

„City of Bangkok“ á Schiphol-flugvellinum árið 2003

Júmbó-þotufloti KLM verður orðin helmingi minni eftir árið 2018 og árið 2021 verður engin Boeing 747 þota lengur í flota félagsins og verður þeim öllum skipt út fyrir nýjum Boeing 777 og Boeing 787 þotum.

KLM hefur haft 45 júmbó-þotur í flotanum en sú fyrsta var af gerðinni Boeing 747-200 og var hún afhent til félagsins árið 1971.

PH-BFB er í dag elsta Boeing 747-400 þotan sem er enn á flugi í heiminum en sú næst elsta er í flota indónesíska flugfélagsins Lion Air en sú þota var fyrst afhent til Singapore Airlines árið 1989.

PH-BFA, fyrsta Boeing 747-400 þota KLM, í niðurrifi á Teruel-flugvellinum á Spáni







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga