flugfréttir
Boeing kynnir framlengingu á hjólastelli fyrir 737 MAX 10
- Lengist við „rotate“ og dregst saman áður en hjólið fer aftur upp
Skjáskot af mynbandi frá Boeing
Boeing hefur komið með lausn við vandamáli með hjólastellið á Boeing 737 MAX 10 þotunni en verkfræðingum hjá Boeing hefur tekist að endurhanna hjólastellið á lengstu þotunni í MAX fjölskyldunni án þess að þörf sé fyrir breytingu á hönnun vélarinnar sjálfrar.
Boeing 737 MAX verður 43.8 metrar á lengd eða 1.8 metrum lengri en Boeing 737-900ER sem í dag er lengsta Boeing 737 þota
sem framleidd hefur verið.
Hjólastellið á Boeing 737 þotunum hafa í gegnum tíðina verið frekar stutt samanborið við aðrar þotur af sambærilegri
gerð en til að styðja við enn lengri búk þurfti Boeing að koma með nýja lausn sem gæti falið í sér nýja gerð af hjólastelli
sem þarf því þá að vera lengri.
Boeing hefur hinsvegar viljað forðast að breyta hönnuninni á hjólarýminu, þar sem hjólin fara inn þegar þau eru dregin upp eftir flugtak, þar sem það kallar á viðamiklar breytingar á skrokknum sjálfum.
Hjólastellið mun dragast aftur saman og fara í sömu stærð inn í hjólarýmið eftir flugtak
Lausnin sem Boeing kynnt er framlenging á aðalhjólastellinu sem dregst út og lengir stellið sjálft um 24 sentimetra á þeim
tímapunkti sem þotan er að fara hefja sig á loft („rotate“) sem eykur einnig rýmið fyrir stélendann sem annars gæti rekist ofan í brautina.
Þegar flugvélin sleppir brautinni gengur framlengingin aftur inn og stellið fer upp í hefðbundinni lengd og inn í hjólarýmið þegar
hjólin eru tekin upp.
„Okkur langaði að viðhalda áfram 90% sameiginleika milli Boeing 737 MAX þotnanna og við vildum fá hjólastellið
til þess að dragast upp aftur inn í sama hjólarýmið“, segir Gary Hamatani, yfirverkfræðingur yfir Boeing 737 MAX deildinni.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.