flugfréttir
Boeing 767 fer úr flota American árið 2021
Boeing 767-300ER breiðþota American Airlines
American Airlines hefur ákveðið þá dagsetningu sem félagið ætlar sér að vera búið að losa sig við Boeing 767 breiðþoturnar.
American Airlines hefur tuttugu og þrjár Boeing 767 þotur í flotanum sem allar eru af gerðinni Boeing 767-300ER
en meðalaldur vélanna eru 20 ár og var sú elsta afhent félaginu árið 1993.
Til stendur að allar Boeing 767 þoturnar verði farnar úr flotanum árið 2021 en þær verða leystar af hólmi með nýjum
Dreamliner vélum af gerðinni Boeing 787-8 og Boeing 787-9.
American Airlines hefur notað í dag Boeing 767 þoturnar í flugi yfir Atlantshafið til Evrópu, til Suður-Ameríku auk
þess sem þær hafa einnig verið notaðar í innalandsflugi í Bandaríkjunum.
Félagið hafði einnig Boeing 767-200 í flota sínum í mörg ár en hætti með þær vélar árið 2016.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.