flugfréttir
VLM Airlines í Belgíu gjaldþrota
Fokker 50 flugvélar VLM Airlines
Belgíska flugfélagið VLM Airlines hefur hætt starfsemi sinni en stjórn félagsins tilkynnti þann 31. ágúst sl. að stærsti hluthafi félagsins, SHS Aviation, hafi ákveðið að binda endi á rekstur þess í kjölfar hluthafafundar sem fram fór fyrir helgi.
Í yfirlýsingu kemur að öllu áætlunarflugi hafi verið hætt og verði rekstur félagsins leystur upp og rekstur félagsins og
eigur þess seldar.
SHS Aviaiton er í eigu hollenskra og kínverskra fjárfesta auk slóvenska systurfélagsins VLM Airlines (Slovenia)
sem hefur þrjár Fokker 50 vélar í rekstri.
VLM Airlines hafði í ágúst birt áform sín um endurskipulagningu á rekstri félagsins en til stóð að hætta nánast
öllu áætlunarflugi og einblína nær eingöngu á leiguflug og viðhaldsverkefni.
VLM Airlines var þegar komið í gjaldþrot árið 2016 en fjárfestar í Hollandi komu félaginu til bjargar en tilraunir til þess að koma félaginu aftur á flug dugðu skammt.
VLM Airlines var umsvifamesta flugfélagið á flugvellinum í Antwerp í Belgíu og skilur félagið flugvöllinn eftir
með aðeins tvö flugfélög sem fljúga áfram um völlinn sem eru TUI fly og flybe.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.