flugfréttir
Sjöunda veggspjaldið fjallar um skort á aðföngum
Sjöunda „Dirty Dozen“ veggspjaldið fjallar um „Lack of Rescources“ eða Skort á aðföngum
Samgöngustofa hefur gefið út sjöunda veggspjaldið af tólf í Dirty Dozen seríunni sem fjallar um þær leiðir sem hægt er að fara til að bregðast við skort á aðföngum.
Veggspjaldið nefnist á ensku „Lack of Resources“ en þar eru meðal annars taldar upp leiðir til þess að koma í veg
fyrir skort á aðföngum með því að sjá til þess að ávalt sé nægur mannafli til staðar.
Einnig er mælt með því að nægar birgðir af tækjum, búnaði og varahlutum séu til staðar hverju sinni og ekki sé gripið
til þeirra aðgerða að notast við aðrar tegundir af hlutum og búnaði en ætlast er til er kemur að flugrekstri.
Þá er farið fram á að sleppt sé að framkvæma verk í stað þess að gera það á ranga vegu sem getur haft afleiðingar
er kemur að flugöryggi.
„Lack of Resources“ veggspjaldið á við á öllum sviðum flugsins.
Hér má sjá stærri útgáfu af veggspjaldinu á vef Samgöngustofu
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.