flugfréttir
Ryanair sakar NATS um mismunun á Stansted
Boeing 737-800 þotur Ryanair á Stansted-flugvelli
Ryanair hefur formlega sent inn kvörtun þar sem lágfargjaldafélagið írska sakar bresku flugumferðarstjórnina NATS um að mismuna umsvifum félagsins á Stansted-flugvelli.
Ryanair segir að hvergi hafi flugfélagið lent í eins mörgum seinkunum og á Stansted-flugvellinum þar sem félagið hefur mestu
umsvif sín á öllu Bretlandi.
Samkvæmt upplýsingum frá félaginu þá varð seinkun á 52% af öllum flugferðum Ryanair á Stansted-flugvelli á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs sem er mun meira en á Luton-flugvelli sem þar sem 30% flugferða voru ekki á tíma en fram kemur að
á sama tímabili mældist seinkun á flugi á London Gatwick um 10% og 8 prósent á Heathrow-flugvelli.
Ryanair segir að um samráð sé að ræða þar sem British Airways og easyJet eigi bæði hlut í NATS en bæði
félögin fljúga aðallega frá London Heathrow og London Gatwick.
„NATS gerir ekki upp á milli flugfélaga og það er ekki hægt að saka okkur um óstundvísi Ryanair í sumar“, kemur fram
í yfirlýsingu frá bresku flugumferðarstjórnina.
„Tölurnar frá Ryanair koma frá fyrstu mánuðum ársins en á því tímabilið vorum við að innleiða nýtt kerfi sem olli seinkunum
sem hafði einnig áhrif á London Luton flugvöll og á aðra flugvelli þar sem seinkun varð yfir sjö mánaða tímabil“, segir ennfremur.
Ryanair sendi inn sambærilega kvörtun í fyrra gegn NATS og bresku flugmálastjórninni (CAA) en ásakanirnar voru teknar
fyrir af yfirvöldum og kom í ljós að Ryanair hafði ekki verið mismunað á nokkurn hátt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.