flugfréttir
Stefna á smíða 57 Boeing 737 þotur á mánuði
Frá verksmiðjum Boeing í Renton þar sem Boeing 737 er smíðuð
Boeing ætlar sér að auka afkastagetuna í framleiðslu á Boeing 737 þotunum þrátt fyrir þá erfiðleika sem hafa gengið yfir í samsetningu vélanna í sumar.
Fyrr á þessu ári framleiddi Boeing fjörutíu og sjö Boeing 737 þotur á mánuði en hraðinn jókst
nýlega upp í 52 þotur á mánuði.
Dennis Muilenberg, framkvæmdarstjóri Boeing, hefur tilkynnt að til standa að hækka
framleiðsluhraðann um fimm þotur á mánuði og fara upp í 57 þotur annaðhvort fljótlega
seint á næsta ári eða árið 2020.
Á meðan hafa fimmtíu Boeing 737 þotur hrannast upp á athafnarsvæði Boeing í Renton
vegna seinkanna á hreyflum frá CFM International og þá hefur einnig verið seinkun
á skrokkum frá fyrirtækinu Spirit AeroSystems í Kansas.
Þrátt fyrir þetta þá stefnir Boeing á að afhenda 810 til 815 þotur á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.