flugfréttir
190 flugferðum aflýst hjá Ryanair vegna verkfalls
- Flugfreyjur og flugþjónar í sex löndum fella niður störf sín
Boeing 737-800 þota Ryanair í lendingu á flugvellinum í Kaupmannahöfn
Eitt stærsta verkfall í sögu Ryanair er í uppsiglingu á föstudag eftir að flugfreyjur og flugþjónar hjá félaginu í sex Evrópulöndum munu fella niður störf sín í einum stærstu verkfallsaðgerðum félagsins.
Um er að ræða flugfreyjur og flugþjóna Ryanair á Spáni, Belgíu, Hollandi, Portúgal, Ítalíu
og í Þýskalandi en félaginu hefur ekki tekist að semja við áhafnir sínar í þessum löndum.
Ryanair hefur fellt niður yfir 190 flugferðir á föstudag sem mun hafa áhrif á 30.000 farþega
en alls eru 18.000 flugfreyjur og flugþjónar sem munu
leggja niður störf sín.
Árangurslausir fundir hafi farið fram í marga mánuði varðandi kjör og starfsumhverfi áhafna Ryanair í þessum löndum og segja starfsmenn að félagið hafi hunsað kröfur þeirra um bætt kjör og rétt til þess að starfa undir reglugerðum í þeirra löndum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.