flugfréttir
Þota endaði inn í trjám
Verið var að draga þotuna út flugskýli og að stæði á flugstöðinni þegar beisli losnaði
Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis á Congonhas-flugvellinum í São Paulo í Brasilíu í gær þegar farþegaþota frá TAM Airlines af gerðinni Airbus A320 endaði á trjám þegar verið var að færa hana til á flugvallarsvæðinu með dráttarbíl.
Verið var að færa þotuna frá flugskýli yfir á stæði við flugstöðina þegar vandamál kom upp með dráttarbeisli
sem losnaði frá nefhjólin með þeim afleiðingum að þotan rann aftur á bak með stélið inn í tré.
Engir farþegar voru um borð í þotunni og urðu engin meiðsl á starfsfólki en skemmdur urðu á stéli þotunnar
og hægri stélvæng.
Engar tafir urðu á flugumferð á Congonhas-flugvellinum þrátt fyrir atvikið.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.