flugfréttir

Fær 1.4 milljón í bætur eftir slæma frammistöðu í flughermi

- Air New Zealand vildi ekki leyfa flugstjóranum að fljúga lengur

7. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:40

Boeing 777 flughermir

Air New Zealand hefur verið dæmt til þess að greiða flugstjóra 1,4 milljón króna í bætur eftir að flugfélagið nýsjálenska ákvað að hann skildi ekki fljúga lengur í kjölfar mistaka í færnisprófi í flughermi auk annarra atvika.

Flugstjórinn, Peter Cross, hafði flogið Boeing 777 þotu hjá Air New Zealand í mörg ár en í reglubundinni þjálfun í flughermi í mars árið 2015 var frammistaða Peters ekki upp á marga fiska og ákvað flugfélagið að það gæti ekki tekið áhættuna á að verja meira fé í áframhaldandi þjálfun í hermi sem flugfélagið greiðir fyrir flugmenn til að meta færni þeirra.

Síðasta þjálfunin var fólgin í því að bregðast við bilun í sjálfstýringu á lokastefnu í 200 fetum og náði Peter ekki að bregðast við því í flughermi og brotlenti flugvélin í herminum en þau mistök voru ein af nokkrum.

Boeing 777 þota Air New Zealand

Fram kemur að Peter hafi ekki fengið fluglæknisvottorð sitt endurnýjað árið eftir er hann mætti í læknisskoðun og segir Eleanor Robinson, yfirmaður hjá atvinnusamtökum Nýja-Sjálands, að Peter telji að árangur hans í flugherminum hafi haft áhrif á þá ákvörðun hjá fluglækni.

Önnur atvik höfðu einnig áhrif

Einnig kemur fram að nokkur atvik hafi spilað inn í ákvörðun Air New Zealand um að láta hann ekki fá fleiri vaktir og var honum boðið skrifstofustarf hjá flugfélaginu.

Peter hafði fengið á sig fjögur atvik í áætlunarflugi skömmu áður en það seinasta átti sér stað árið 2014 í flugi milli Perth og Auckland þar sem fram kemur að Peter hafi ekki opnað dyrnar inn í stjórnklefann eftir að aðstoðarflugmaður hans snéri til baka í klefann eftir að hafa farið á salernið en í kjölfar þess var honum gert að sækja tíma hjá sálfræðingi.

„Of tímafrekt og dýrt að þjálfa hann aftur“

Eftir hrakfarirnar í flugherminum í mars árið 2015 tók Peter sér veikindafrí í það langan tíma að hann var ekki lengur í æfingu til þess að fljúga Boeing 777 og þurfti hann því að ganga aftur í gegnum þjálfunarferli auk þess að fá læknisvottorðið sitt endurnýjað.

Peter fékk aftur Class 1 vottorð skömmu síðar en Air New Zealand vildi ekki taka við honum aftur á þeim forsendum að árangurs hans í þjálfun fellur utan þess ramma sem eðlilegt er samkvæmt reglugerðum í þjálfun flugmanna hjá félaginu en þess má geta að Peter hafði ávalt staðið sig vel sem flugstjóri án atvika fyrir árið 2015 í þau 33 ár sem hann hafði starfað hjá félaginu.

Air New Zealand sagði að það væri of tímafrekt að fara út í að þjálfa Peter upp á nýtt auk þess sem því fylgdi of mikill kostnaður þar sem engin trygging sé fyrir því að það myndi bera árangur.

Niðurstaða Atvinnusamtaka Nýja-Sjálands voru þau að flugfélagið hefði brugðist Peter þar sem hann hefði átt rétt á að fá annað tækifæri og hefði félagið átt að finna viðunandi lausn á vandamálinu í stað þess að láta hann flosna upp og missa færni sína sem flugstjóri.

Á þessum forsendum var Air New Zealand gert að greiða Peter Cross bætur upp á 1.465.000 krónur.

Peter Cross hóf störf hjá Air New Zealand árið 1985 og hafði hann því flogið í 33 ár hjá flugfélaginu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga