flugfréttir
Hjá Höllu opnar á Keflavíkurflugvelli
Fjölmenni var við opnun staðarins í gær fimmtudaginn 18. október á Keflavíkurflugvelli
Veitingastaðurinn Hjá Höllu opnaði formlega í gær í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli þar sem gengið er út í hlið C á flugvellinum.
Hjá Höllu var með hagstæðasta tilboðið í samkeppni um útleigu á aðstöðu undir veitingaþjónustu sem fram fór síðastliðið vor en veitingastaðurinn er rekinn af Höllu Maríu
Svansdóttur sem hefur rekið veitingastað undir sama merki í Grindavík við góðan orðstír.
Hjá Höllu býður uppá eldbakaðar súrdeigspítsur, ferskan fisk frá Grindavík, fersk salöt sem og úrval rétta til að taka með sér í flug.
Búið er að koma fyrir stórum gaseldofni þar sem pítsurnar eru bakaðar við háan hita á aðeins 90 sekúndum en þeir farþegar sem eru hvað mest að flýta sér geta gripið
með sér tilbúnar pítsusneiðar.
„Við erum mjög spennt að hefja nú rekstur á staðnum en opnunin er búin að vera í undirbúningi í sumar, allt frá því að samkeppninni lauk. Það er búið að vera mikil áskorun að setja upp stað sem þennan í flugstöðinni enda fjölmörg atriði sem þarf að hafa í huga í slíku verkefni með allan þann fjölda farþega sem fer hér um á hverjum degi“, segir Halla María Svansdóttir.
„Viðtökurnar hafa verið afar góðar hingað til en staðurinn var opnaður til prufu fyrir nokkru síðan. Við bjóðum alla þá sem huga á ferðalög úr landi velkoma til okkar og prófa það sem við höfum uppá að bjóða.“
Fjölmenni var við opnun staðarins í gær fimmtudaginn 18. október og er staðurinn spennandi viðbót við þann fjölda veitingastaða sem fyrir eru í flugstöðinni.
Myndir frá opnuninni í gær:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.