flugfréttir
Laudamotion sker niður með lokun starfsstöðva í Austurríki
- Stefna þrátt fyrir þá á umtalsverðan vöxt á næstu árum
Fyrrum Formúla 1 kappaksturskappinn Niki Lauda keypti til baka Niki flugfélagið sem hann stofnaði árið 2004
Flugfélagið Laudamotion stefnir á niðurskurðaraðgerðir með því að loka tveimur starfsstöðvum í Austurríki en flugfélagið hóf starfsemi sína fyrr á þessu ári og er í dag dótturfélag Ryanair.
Til stendur að loka áhafnarstöðvum í Graz og í Salzburg á næstu mánuðum til að skera niður
rekstarkostnað félagsins og stendur ekki til að hafa neinar þotur staðsettar á flugvöllum í þessum borgum.
Lokunin mun hafa áhrif á
28 áhafnarmeðlimi og hefur þeim verið boðin störf í Vín, Dusseldorf og í Stuttgart
þess í stað.
Þrátt fyrir þetta þá segir Andreas Gruber, framkvæmdarstjóri Laudamotion, að félagið stefni á umtalsverðan
vöxt á næstunni en séð er fram á 20 milljarða króna taprekstur á fyrsta árinu vegna þess kostnaðar
sem sem hefur farið í stofnun félagsins.
Laudamotion sér fram á að farþegatölur á fyrsta starfsárinu nái þremur milljónum og hefur sætanýtingin
verið um 90% að meðaltali en félagið ætlar að tvöfalda flugflotann upp 18 Airbus-þotur á næsta ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.