flugfréttir

Delta tekur við fyrstu Airbus A220 þotunni

26. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:09

Afhendingarathöfnin í verksmiðjum Airbus og Bombardier sl. föstudag

Delta Air Lines hefur formlega tekið við fyrstu Airbus A220 þotunni og er félagið fyrsta flugfélagið í Norður-Ameríku til að fá þessa flugvélategund sem áður hét CSeries.

Fyrsta þota Delta er af minni gerðinni, Airbus A220-100 (CS100) og tók félagið við þotunni við hátíðlega athöfn í sameiginlegri verksmiðju Airbus og Bombardier á Mirabel-flugvellinum í Montréal fyrir helgi.

Delta pantaði 75 eintök af CS100 þotunni í apríl árið 2016 en pöntunarferlið gekk ekki snuðrulaust fyrir sig þar sem Boeing sakaði Bombardier um að þiggja ólögmæta styrki frá kanadíska ríkinu og voru 292% innflutningstollar settir á þotuna af hálfu stjórnvöldum í Bandaríkjunum.

Airbus A220 þota Delta Air Lines kemur með sætum fyrir 109 farþega

„Það er gríðarlegt stolt fyrir alla hjá Airbus að sjá þessa þotu komna í liti Delta Air Lines“, sagði Guillaume Faury, forstjóri yfir farþegaþotudeild Airbus, við afhendingarathöfnina sl. föstudag.

Fyrsta flug Delta Air Lines með Airbus A220 verður flogið þann 31. janúar 2019 frá LaGuardia-flugvellinum í New York til Boston og til Dallas en þotan verður einnig notuð í flugi til Salt Lake City, Detroit og Houston.

Þá munu tvö önnur flugfélög í Norður-Ameríku hefja áætlunarflug með Airbus A220 á næstu tveimur árum en árið 2019 mun Air Canada fá sitt fyrsta eintak og JetBlue árið 2020.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga