flugfréttir
Meinað um eldsneyti í Istanbúl
Airbus A340 breiðþota Iran Aseman Airlines á flugvellinum í Istanbúl
Írönskum farþegaflugvélum hefur verið meinaður aðgangur að þotueldsneyti á flugvellinum í Istanbúl þar sem stjórn flugvallarins hefur ákveðið að neita að afgreiða írönsk flugfélög.
Nokkur flugfélög í Íran, sem fljúga til Istanbúl, fengu tilkynningu í tölvupósti fyrir helgi þar sem þeim var tilkynnt að þau
fengju ekki eldsneyti í Ístanbúl í nóvember án frekari útskýringa.
Var það til þess að eitt flugfélag þurfti að fella niður nokkur flug til Istanbúl en meðal íranskra flugfélaga sem fljúga til
Istanbúl eru Mahan Air, Iran Air, ATA Airlines, Qeshm Airlines og Iran Aseman Airlines.
Félag íranskra flugfélaga (AIRA) segja ákvörðunina ólýðandi þar sem flugfélögin fljúga til samans um 200 flugferðir
í viku til Istanbúl frá borgunum Teheran, Urmia og Tabriz.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.