flugfréttir
United ætlar að fækka um eina flugfreyju í millilandaflugi
- Hagræða í rekstri með að hafa einum færri í áhöfn
United hefur átt í stormasömu sambandi við flugfreyjur og flugþjóna félagsins frá því að samruninn við Continental átti sér stað árið 2010
United Airlines ætlar að fækka flugfreyjum og flugþjónum um borð í flugvélum sínum í millilandaflugi um einn flugliða í þeim tilgangi að ná fram hagræðingu í rekstri.
Til stendur að fækka um einn flugliða í langflugi um borð í þotum af gerðinni Boeing 757-200, Boeing 767-400ER, Boeing 777-200 og
Boeing 787 frá og með 1. febrúar 2019 en á sama tíma stendur til að fjölga um eina flufreyju um borð í Boeing 777-300ER þotunum
þegar hægt er.
John Slater, yfirmaður yfir þjónustudeild United Airlines, segir að með þessu verði hægt að hagræða bæði í rekstri og starfsmannamálum og verður fjöldi flugfreyja um borð hjá félaginu þá í samræmi við fjölda flugliða hjá American Airlines og Delta Air Lines.
Flugfreyjufélaginu AFA lýst ekki vel á þessar breytingar og segja þær vera af hinu neikvæða og gætu færri flugfreyjur um
borð bitnað á þjónustu við farþega.
Ken Diaz, formaður AFA (Association of Flight Attendants-CWA), segir að þessi skerðing sé aðeins tilraun til þess að koma til
móts við rekstaráætlun félagsins sem er gerð til þess að halda verðbréfasölum á Wall Street ánægðum.
United hefur átt í stormasömu sambandi við flugfreyjur og flugþjóna félagsins frá því að samruninn við Continental átti sér stað
árið 2010 en það tók sex ár fyrir félagið að sameina flugfreyjur flugfélaganna tveggja undir einn hatt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.