flugfréttir
Misstu stjórn á Embraer-þotu rétt eftir flugtak í Lissabon
- Lýstu yfir neyðarástæandi og skipulögðu að lenda á vatni
Flugferill þotunnar á Flightradar24.com
Farþegaþota frá flugfélaginu Air Astana lýsti yfir neyðarástandi (7700) á fjórða tímanum í dag, rétt eftir flugtak frá flugvellinum í Lissabon í Portúgal, en flugmennirnir sögðu að þeir hefðu litla sem enga stjórn á vélinni.
Þotan, sem er af gerðinni Embraer ERJ-190LR, var á leið til Almaty en samkvæmt óstaðfestum
heimildum þá voru nokkur kerfi vélarinnar sem duttu út og kemur fram að flugmennirnir áttu í erfiðleikum bæði
með að halda hæð og hraða eftir flugtak.
Á Flightradar24.com má sjá óreglulegan flugferil vélarinnar yfir suðurhluta Portúgal og voru tvær F-16 herþotur
á vegum portúgalska flughersins sendar af stað og flugu þær til móts við flugvélina.
Fram kemur að flugstjórinn hafi látið flugumferðarstjóra vita að til stæði að nauðlenda vélinni í sjónum undan
strönd landsins þar sem þeir höfðu misst út alla stjórnskjái um borð en skömmu síðar sögðu þeir
að þeir hefðu náð stjórn aftur á vélinni.
Þotan lenti um klukkan 15:20 að íslenskum tíma á flugvellinum í bænum Beja, suðaustur
af Lissabon, eftir þrjár lendingartilraunir.
Þotan sem um ræðir, P4-KCJ, var smíðuð árið 2013
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.