flugfréttir
Boeing 787 fór inn á braut á meðan A350 var í flugtaki
- Hættu við flugtakið á miklum hraða
Slökkviliðsbíll við Airbus A350 þotuna eftir að hún hætti við flugtakið á Pudong-flugvellinum í gær
Farþegaþota af gerðinni Airbus A350-900 frá Delta Air Lines þurfti að hætta við flugtak á Pudong-flugvellinum í Shanghai í gær eftir að önnur þota fór inn á brautina.
Flugmenn A350 þotunnar frá Delta voru búnir að setja fullt afl á hreyflana fyrir flugtak þegar þeir komu auga
á Boeing 787 þotu frá Japan Airlines sem ók inn á brautina en sú flugvél var nýlent á annarri flugbraut sem liggur
samsíða hinni.
Flugvélin frá Delta, sem var á leið til Detroit, var komin á yfir 100 kt hraða þegar flugmennirnir hemluðu eftir að þeir
sáu þotuna frá Japan Airlines fara yfir brautina í fjarska.
Slökkvilið flugvallarins mætti á vettvang til þess að kæla niður bremsurnar sem urðu mjög heitar við hemlunina og var fluginu
til Detroit aflýst.
Samkvæmt heimildum þá höfðu flugumferðarstjórarnir beðið flugmenn Japan Airlines um að bíða við brautina en
þeir hunsuðu hinsvegar fyrirmælin og þveruðu yfir brautina
á meðan þota Delta Air Lines var í flugtaksbruni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.