flugfréttir
Lögreglukonur í Dubai drógu Boeing 777-300ER með kaðli
- Komust inn í Heimsmetabók Guinness
77 konur úr lögreglunni í Dubai drógu þotuna í morgun alls 100 metra
Konur úr lögreglunni í Dubai sýndu í morgun hvað í þeim býr er þær náðu að draga Boeing 777-300ER þotu frá Emirates yfir 100 metra með kaðli.
Lögreglukonurnar, sem tóku þátt í toginu, voru 77 talsins og komust þeir með þessu inn í
Heimsmetabók Guinness en þotutogið var hluti af Dubai Fitness Challenge hátíðinni sem lýkur á morgun.
Boeing 777-300ER er ein af stærstu farþegaþotum heims og vegur ein slík þota yfir 240 tonn
en meðal viðstaddra sem fylgdust með toginu voru ýmsir yfirmenn í Dubai auk varaformanns Dubai Airports.
Boeing 777-300ER þotur Emirates koma með GE90 hreyflum sem skila af sér afli upp á 115.000 pund sem samsvarar 110.000 hestöflum en brot af því þarf til þess að koma þotunni á hreyfingu - eða 77 hraustar lögreglukonur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.