flugfréttir
Tvö stór flugfélög á suðurhveli jarðar berjast í bökkum
- South African og Aerolineas Argentinas þurfa milljarða í aukið rekstarfé
South African Airways og Aeronlineas Argentinas eiga bæði í mjög miklum erfiðleikum í rekstri
Tvö stór flugfélög á suðurhveli jarðar berjast nú í bökkum við að geta haldið rekstri sínum gangandi, annað flugfélagið í Suður-Ameríku og hitt í Afríku.
Annars vegar er um að ræða South African Airways sem segir að félagið þurfi
um 67 milljarða króna í lán til að gera haldið daglegum rekstri gangandi áfram
fram til ársins 2019 sem er rétt handan við hornið.
Fáir bankar í Suður-Afríku hafa sýnt áhuga á því að lána félaginu án þess að lánið sé tryggt
frá suður-afrísku ríkisstjórninni sem segist ekki vilja setja meira fé í reksturinn.
South African, sem er 84 ára gamalt flugfélag, stofnað árið 1934, hefur ekki skilað inn
hagnaði frá árinu 2011 og hefur félagið komist af með því að þiggja fjárveitingar
frá ríkisstjórninni.
Félagið er fimmta stærsta flugfélag Afríku á eftir Air Algerie, Royal Air Maroc, EgyptAir og
Ethiopian Airlines sem er það stærsta í álfunni.
Stjórn flugfélagsins hafði endurgert fjárhagsáætlun South African með áætlunum um
að fækka starfsmönnum og segir að með þeirri áætlun geti félagið náð fram hagnaði árið 2021
en þrátt fyrir það vilja lánadrottnar ekki semja um skuldir og veita félaginu aftur aðgang
að lánalínum svo félagið geti haldið áfram rekstri í desember.
Þá þyrfti South African fé upp á 35 milljarða króna til viðbótar í mars á næsta ári til að geta
haldið rekstrinum gangandi áfram fram á sumar.
Þarf 124 millarða króna til að geta haldið áfram rekstri
Hitt flugfélagið sem um ræðir er Aerolineas Argentinas sem er einnig 5. stærsta flugfélagið
í sinni heimsálfu á eftir Azul Linhas Aereas, Avianca, GOL og LATAM.
Framkvæmdarstjóri Aerolineas Argentinas hefur lýst því yfir að flugfélagið sé „tæknilega gjaldþrota“ en félagið hefur verið starfandi í 69 ár en það var stofnað árið 1949.
Félagið þarf á 124 milljörðum króna á að halda til að geta haldið áfram rekstri en ný stjórn
félagsins segir að félaginu hafi verið illa stjórnað af fyrri stjórnendum og engin, skýr
viðskiptaáætlun hafi verið í gangi.
Rekstur Aerolineas Argentinas var ríkisvæddur árið 2008 en verkalýðsfélög og farþegar hafa óttast framtíð félagsins og starfsmenn hafa óttast uppsagnir að undanförnu.
Félagið segir hinsvegar að nú sé aðaláherslan lögð á að halda uppi flugi til þeirra áfangastaða
sem skila félaginu hagnaði og sé flugið frá Buenos Aires til New York loksins orðið arðbært
en ekki er það sama að segja um margra áfangstaði í innanlandsflugi í Argentínu og til
áfangastaða í öðrum löndum í Suður-Ameríku.
Iseal Costantini, framkvæmdarstjóri félagsins, segir að búið sé að gera nýja rekstaráætlun
sem muni veita flugfélaginu aðgang að lánum á ný auk þess sem ímynd Argentínu sé mjög góð
sem styrki traust landsins í augum annarra landa sem vita að landið greiðir alltaf skuldir sínar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.