flugfréttir

Lion Air hótar að fara í mál við rannsóknarnefnd flugslysa

- Telja að Boeing 737 MAX þotan hafi ekki verið lofthæf

29. nóvember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:48

Edward Sirait, forstjóri Lion Air

Flugfélagið Lion Air hefur hótað því að fara í mál við Nurcahyo Utomo, yfirmann rannsóknarnefndar flugslysa í Indónesíu, eftir að hann tilkynnti í gær að Boeing 737 MAX þotan, sem fórst eftir flugtak frá Jakarta þann 29. október, hafi ekki verið í flughæfu ástandi.

Í bráðabirgðarskýrslu varðandi flugslysið, sem birt var í gær, kemur fram að flugmennirnir, sem flugu þotunni daginn áður frá Bali til Jakarta, hafi átt í erfiðleikum með að halda stöðugleika þotunnar á tímabili og þurftu þeir að bregða á það ráð að aftengja MCAS-búnað sem á að leiðrétta áfallshorn vélarinnar sjálfkrafa og náðu þeir stöðugleika á ný með handvirkri stjórn.

Yfirmaður rannsóknarnefndarinnar segir að í ljósi þessa þá sé hægt að segja að flugvélin hafi ekki verið lofthæf og flugfélagið hefði ekki átt að halda áfram að fljúga þotunni fyrst að vandamálið var komið upp í a.m.k. tveimur flugferðum fyrir slysið.

„Í fluginu frá Bali til Jakarta var flugvélin ekki lofthæf þar sem að nokkur vandamál komu upp í miðju flugi og var flugvélin nálægt því að fara í ofris“, sagði Utomo í gær.

Þá kemur fram að flugmaðurinn, sem flaug þotunni frá Bali til Jakarta, hafi lýst yfir neyðarástandi áður en hann framkvæmdi nokkrar prófanir á kerfum sem leiddi í ljós að ekki var nauðsynlegt að lenda og afturkallaði hann því neyðarástandið.

Nurcahyo Utomo, yfirmaður rannsóknarnefndar flugslysa í Indónesíu, útskýrir áfallshorn og loftflæði með líkan af Boeing 737 þotu

„Eitt af því sem getur svipt flugvél lofthæfiskírteini eru atvik sem geta komið upp á meðan hún er á flugi og þá er það alfarið í höndunum á flugstjóranum að halda áfram eða lenda flugvélinni“, bætir Utomo við.

Edward Sirait, forstjóri Lion Air, segir að flugfélagið hafi farið fram á að fá útskýringar á þessum ummælum og hefði flugfélagið rétt á því að höfða málsókn vegna ummæla Utomo.

„Í Denpasar var þessi flugvél útskrifuð frá flugvirkjum og var því tilbúin til þess að fara í notkun. Flugvélin var lofthæf og við munum grípa til aðgerða vegna þessara ummæla og mögulega höfða mál“, segir Sirait.

Sirait gagnrýnir einnig bráðabirgðaskýrsluna og segir hana fulla af mótsögnum og ekki komi neitt fram um mögulega orsök slyssins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga