flugfréttir

Aldrei eins margar seinkanir á flugi í Evrópu og árið 2018

- Ástæðan er mannekla og verkföll meðal flugumferðarstjóra

29. nóvember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:29

Þúsundum flugferða var aflýst eða urðu fyrir seinkunum á þessu ári í Evrópu

Árið 2018 verður eitt versta árið í heilan áratug er kemur að seinkunum á flugi í Evrópu en sjaldan hafa orðið eins miklar seinkanir á flugi og var í ár auk þess sem fjöldi aflýstra flugferða náði nýjum hæðum.

Samkvæmt tölum frá Eurocontrol þá fjölgaði seinkunum á flugi í ár um 50% sem er að mestu tilkomin vegna manneklu meðal flugumferðarstjóra og verkfallsaðgerða.

Samtökin „Airlines for Europe“ (A4E) hafa hvatt Evrópusambandið til þess að grípa til aðgerða en þau evrópsk flugfélög, sem eru meðlimir í samtökunum, hafa á þessu ári þurft að fella niður 5.000 flugferðir vegna verkfallsaðgerða meðal flugumferðarstjóra sem hefur haft áhrif á 800.000 farþega.

Samkvæmt útreikningum PriceWaterhouseCoppers þá hafa verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra í Evrópu kostað flugfélögin um 1.900 milljarða króna frá árinu 2010 til 2017 en frá árinu 2005 hafa átt sér stað 357 verkfallsaðgerðir og af þeim 254 meðal franskra flugumferðarstjóra.

Thomas Reynaert, yfirmaður A4E, segir að samgönguráðherrar allra helstu landa Evrópu, muni hittast á fundi þann 3. desember næstkomandi þar sem meðal annars verða ræddar lausnir við vandamálið í flugumferðarstjórnun í Evrópu í dag.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga