flugfréttir

Forstjóri JAL lækkar laun sín vegna ölvaðs flugmanns

- Japan Airlines setur á bann við neyslu áfengis innan 24 tíma fyrir vaktir

3. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:36

Yuji Akasaka hefur ákveðið að lækka laun sín um 20 prósent næstu þrjá mánuðina

Yuji Akasaka, forstjóri Japan Airlines, hefur ákveðið að lækka laun sín um 20 prósent næstu þrjá mánuðina í þeim tilgangi til að afsaka fyrir atvik er flugstjóri einn hjá félaginu var stöðvaður rétt fyrir flug eftir að áfengi mældist í blóði hans sem reyndist langt yfir leyfilegum mörkum.

Atvikið átti sér stað í síðasta mánuði á Heathrow-flugvellinum í London þegar flugmaðurinn Katsutoshi Jitsukawa var látinn gangast undir áfengispróf 50 mínútum fyrir brottför til Tókýó eftir að rútubílstjóri, sem ók áhöfninni frá hótelinu til Heathrow-flugvallarins, fann sterka áfengislykt af flugmanninum.

Í ljós kom að vínandi í blóði flugmannsins, sem er 42 ára, var 10 sinnum meiri en það sem lög gera ráð fyrir í Bretlandi.

Jitsukawa var í seinustu viku dæmdur í 10 mánaða fangelsi í Bretlandi við réttarhöld í Isleworth Crown Court dómshúsinu en hann baðst afsökunar á því að hafa mætt ölvaður rétt fyrir flug og iðraðist þess að hafa orðið flugfélaginu fyrir vonbrigðum.

Katsutoshi Jitsukawa rétt áður en hann ætlaði að ganga um borð í
Boeing 787-9 þotu félagsins á Heathrow-flugvellinum

Jitsukawa sagði við réttarhöld í Bretlandi að hann væri undir miklu álagi í starfi og áfengi hefði oft hjálpað honum við að slappa af.

Japanir hafa lengi verið þekktir fyrir mikinn aga og stundvísi og ákvað forstjórinn flugfélagsins að bregðast við hneyksluninni með því að taka á sig 20% launalækkun næstu þrjá mánuðina og þá munu einnig nokkrir stjórnarmeðlimir Japan Airlines taka á sig 10% launalækkun.

Forstjóri Japan Airlines bað einnig alla afsökunar og sérstaklega þá farþega sem áttu bókað með vélinni en brottför seinkaði um 69 mínútur. Þá stóð til að hafa þrjá flugmenn um borð en þess í stað þurfti þotan að fara í loftið frá Heathrow með aðeins tvo flugmenn í stjórnklefanum.

Annar flugmaður innan Japan Airlines féll á áfengisprófi mánuði síðar

Japan Airlines hefur ákveðið að herða reglur varðandi áfengisneyslu meðal starfsmanna sinna og banna þeim að neyta áfengis innan 24 tíma áður en þeir eiga að mæta til vinnu en hingað til hefur bannið miðast við 12 klukkustundir.

Flugvélar Japan Airlines

Aðeins leið einn mánuður frá því Jitsukawa var stöðvaður á Heathrow-flugvelli þar til annar flugmaður í Japan, sem flaug fyrir Japan Air Commuter, féll á áfengisprófi þann 29. nóvember sl. skömmu áður en hann átti að fljúga ATR skrúfuflugvél í innanlandsflugi.

Sá flugmaður hafði setið að sumbli nóttina áður en var stöðvaður nokkrum mínútum fyrir brottför og þurfti að skipta þeim flugmanni út fyrir annan sem var á bakvakt.

Japan Air Commuter er dótturfélag Japan Airlines og í eigu Japan Airlines Group.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga