flugfréttir

Ekki útilokað að hætta við risapöntun í Boeing 737 MAX

- Eiga eftir að fá 240 þotur til viðbótar

4. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 17:20

Rusdi Kirana, annar stofnandi Lion Air

Indónesíska flugfélagið Lion Air er að endurskoða pöntun sína í þær Boeing 737 MAX þotur sem félagið á eftir að fá afhentar.

Lion Air segir að það sé ekki útilokað að félagið hætti við pöntunina þar sem eftirmálar flugslyssins þann 29. október sl. hafa dregið dilk á eftir sér og einnig í ljósi þess að enn er óljóst hvar ábyrgðin liggur.

Rusdi Kirana, einn af stofnendum Lion Air, segir ævareiður út í Boeing og segir hann framleiðandann vera að reyna að beina athyglinni frá nýja MCAS-kerfinu og kenna flugmönnum Lion Air um slysið á sama tíma og verið er að draga flugfélagið inn á teppið hjá flugmálayfirvöldum sem eru að skoða viðhaldsmál og viðbrögð flugmannana.

Kirana segir að til greina komi að hætta við Boeing 737 MAX þoturnar en félagið á risastóra pöntun inni hjá Boeing í 250 Boeing 737 MAX þotur og hefur félagið fengið 10 af þeim afhentar.

Lion Air á eftir að fá 240 eintök af Boeing 737 MAX

Ef Lion Air hættir við þær 240 þotur sem félagið á eftir að fá afhentar væri Boeing að missa um 5% af öllum þeim pöntunum sem framleiðandinn hefur fengið í þessa flugvélategund.

Talsmaður Boeing segir að verið sé komast til niðurstöðu um orsök flugslyssins án þess að tjá sig um ummæli stofnanda Lion Air.

Kiruna, sem stofnaði Lion Air árið 2000 ásamt bróður sínum, gagnrýnir Boeing fyrir að neita að taka ábyrgðina á sig á sama tíma og þeir eru að kynna nýja uppfærslu á hugbúnaði í kjölfar slyssins og þar með að viðurkenna óbeint að flugslysið skrifast á þá.

Samkvæmt heimildum frá þeim sem starfa í fjármálageiranum í Asíu þá hefur Lion Air auk annarra asískra flugfélaga sem eru í samkeppni við félagið vaxið of hratt og pantað of mikið af þotum og fleiri þotur en þeir hafa not fyrir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga