flugfréttir
Bilun í báðum hreyflum á Airbus A330 þotu
Airbus A330 þotan OO-SFU á flugvellinum í Brussel í nóvember árið 2013
Bilun kom upp í báðum hreyflum á Airbus A330-200 breiðþotu frá Brussels Airlines er þotan var á leiðinni frá Kinshasa í Kongó til Brussel.
Atvikið átti sér stað þann 11. desember sl. og greindu belgísk flugmálayfirvöld frá því í gær en þotan var í 40.000 feta
hæð þegar bilun kom upp fyrst í vinstri Pratt & Whitney PW4000 hreyfli.
Flugmenn vélarinnar gáfu frá sér „PAN PAN“ skilaboð og var íhugað að lenda í borginni Djerba í Túnis en skömmu
síðar tókst flugmönnunum að ræsa hreyfilinn á ný.
Fram kemur að í aðfluginu hafi bilun komið upp því næst í hægri hreyflinum og það nokkrum sinnum en hann
fór sjálfkrafa í gang í hvert sinn og gekk áfram með örðuleikum og lenti flugvélin í Brussel með báða hreyflana í gangi.
Flugvélin, sem ber skráninguna OO-SFU, er 18 ára gömul og var upphaflega afhent til Sabena árið 2000 en fór
í flota Brussels Airlines árið 2013.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.