flugfréttir

Nýtt flugfélag í Afríku pantar 100 Boeing 737 MAX þotur

- Stærsta flugvélapöntun sem gerð hefur verið á einu bretti frá Afríku

26. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:13

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX í litum Green Africa Airways

Nýtt flugfélag í Afríku, sem hefur enn ekki hafið starfsemi sína, hefur lagt inn til Boeing stærstu pöntun sem komið hefur á einu bretti frá Afríku í 100 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX.

Það er flugfélagið Green Africa Airways í Nígeríu sem hefur pantað þoturnar 100 en samkvæmt listaverði er pöntunin metin á 11.7 milljarða bandaríkjadali sem jafngildir eitt þúsund þrjú hundruð sextíu og sjö milljörðum krónum.

Lítið er vitað um þetta nýja flugfélag en á heimasíðu flugfélagsins segir að um sprotaflugfélag sé að ræða sem ætlar að bjóða upp á hagstæð fargjöld og öruggar flugsamgöngur í Afríku.

Green Africa hefur þegar fengið flugrekstrarleyfi afhent frá flugmálayfirvöldum í Nígeríu en að sögn Boeing þá eru nokkur þekkt andlit í flugiðnaðinum sem standa að baki flugfélaginu og þar á meðal Tom Horton, fyrrum forstjóri American Airlines, William Shaw, stofnandi og fyrrum framkvæmdarstjóri VivaColombia og Virasb Vahidi, fyrrum fjármálastjóri American Airlines.

Pöntun Green Africa í Boeing 737 MAX þotunar eitt hundrað skiptist niður í staðfesta pöntun í fimmtíu þotur með möguleika á fimmtíu þotum til viðbótar.

Pöntunin kemur Boeing í fyrsta sætið yfir þann flugvélaframleiðanda sem mun standa uppi með flestar pantanir í nýjar farþegaþotur árið 2018 en Boeing var þegar komið með pantanir í 690 nýjar þotur á árinu á meðan Airbus hafði aðeins fengið pantanir í 380 þotur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga