flugfréttir
Hóta málsókn vegna orðróms um gjaldþrot félagsins
Airbus A350 þota Hong Kong Airlines á flugvellinum í Hong Kong í nóvember árið 2017
Kínverska flugfélagið Hong Kong Airlines hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem félagið hótar því að lögsækja hvaða fyrirtæki eða samtök sem er sem voga sér að hafa uppi efasemdir um fjárhagsstöðu flugfélagsins opinberlega.
Rekstur Hong Kong Airlines hefur gengið brösulega sl. mánuði en þrír
stjórnarmeðlimir félagsins yfirgáfu stjórn félagsins árið 2018 en þrátt
fyrir það þá segir félagið að reksturinn gangi vel.
Fjölmiðlar í Kína hafa fylgst vel með gangi mála hjá Hong Kong Airlines
og sérstaklega í ljósi þess að þann 20. janúar mun gjaldfalla skuld upp á
66.8 milljarða króna sem félagið skuldar lánadrottnum en sérfræðingar
í Kína telja að félagið muni ekki ná að greiða skuldina fyrir þann tíma.
Einnig er uppi orðrómur um að Hong Kong Airlines gæti farið á hausinn
síðar í þessum mánuði eða á næstu vikum en félagið er í eigu HNA Group
sem á og rekur tugi flugfélaga í Asíu auk flugvalla.
„Við fordæmum þá sem hafa uppi fregnir sem enginn grundvöllur er fyrir
og þar á meðla sögusagnir um að félagið sé að verða gjaldþrota. Við
áskilum okkur rétt til þess að höfða mál gegn þeim sem eru að dreifa slíkum
orðrómi“, segir í yfirlýsingu frá félaginu.
Félagið hefur meðal annars frestað því að taka við nýjum þotum og beðið
með að hefja flug til nýrra áfangastaða en Hong Kong Airlines á meðal
annars von á fimmtán Airbus A350 þotum auk þrettán breiðþotna af gerðinni
Airbus A330.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.