flugfréttir

L3 kynnir sérstaka flugnámsleið fyrir konur

- Tíu konur verða valdar í fyrsta kvenkyns atvinnuflugmannsbekkinn

20. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 20:02

Um 850 umsóknir hafa borist í sérstaka flugnámsleið fyrir konur sem flugskólinn L3 Commercial Aviation fer af stað með á næstunni

Flugskólinn L3 Commercial Aviation mun á næstunni fara af stað með sérstakan atvinnuflugmannsbekk sem eingöngu er ætlaður kvenfólki og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa þar sem mun fleiri umsóknir hafa borist en skólinn átti von á.

Um er að ræða flugnámsbraut fyrir konur sem nefnist L3 Pilot Pathways Female Scholarship og var verkefnið kynnt fyrst þann 3. desember sl. og verða 10 konur valdar úr hópi umsækjenda til að hefja atvinnuflugmannsnám en þriðjungur námsins verður niðurgreiddur.

Í seinustu viku hafði skólanum borist 850 umsóknir en markmið verkefnisins er að auka fjölbreytni í stjórnklefanum og einnig til þess að hvetja konur enn frekar til þess að leggja flugið fyrir sig en í Bretlandi er einn af hverjum 10, sem leggja stund á flugnám, konur og þá eru aðeins 6% flugmanna konur meðal breskra flugfélaga.

L3, sem rekur flugskóla í Bretlandi, Nýja-Sjálandi, Portúgal og í Bandaríkjunum, býðst til þess að greiða um 3,8 milljónir króna fyrir flugnámið fyrir þá umsækjendur sem verða valdir sem samsvarar um þriðjung af heildarkostnaðinum.

Þarf að virkja konur líka til þess að koma til móts við skort á flugmönnum

Til greina kemur að bjóða upp á flugnámsbraut fyrir konur einnig í Norður-Ameríku þar sem þriðjungur þeirra flugnema, sem leggja stund á nám við skólann, eru staðsettir.

L3 Pilot Pathways Female Scholarship var kynnt til sögunnar í byrjun desember

„Af þeim 850 sem sóttu um þá hafa aðeins þrjátíu sótt um áður sem endurspeglar að þetta hefur kveikt mikinn áhuga meðal kvenna sem margar hverjar telja að þær geta ekki orðið flugmenn“, segir Robin Glover-Faure, yfirmaður yfir þjálfunardeild skólans.

Stærsti viðskiptavinur L3 er easyJet og hefur skólinn útskrifað marga atvinnuflugnema sem hafa hafið störf sem flugmenn hjá lágfargjaldafélaginu breska.

Glover-Faure tekur fram að markmið flugnámsleiðarinnar fyrir konur sé ekki beinlínis til þess að koma á jafnvægi meðal kynjanna heldur til þess að fjölga enn frekar þeim sem leggja flugnámið fyrir sig og það gerist ekki eingöngu með því að karlar leggi stund á flugnám.

„Flugfélögin munu ekki ná að ráða eins marga flugmenn og þau þurfa í framtíðinni nema að hægt sé að nýta alla þá sem eru hæfir og hafa áhuga á starfinu. Þar af leiðandi þarf að fá hæfileikaríkar konur líka í starfsstéttina“, bætir Glover-Faure við.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga