flugfréttir

Reyndi að ræna farþegaþotu Aeroflot í Rússlandi

- Krafðist þess að áhöfnin myndi fljúga flugvélinni til Afghanistan

22. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:05

Sérsveitarmenn fóru um borð í þotu Aeroflot og leiddu hann frá borði

Tilraun til flugráns var gerð um borð í farþegaþotu af gerðinni Boeing 737-800 frá Aeroflot sem var í innanlandsflug í Rússlandi í morgun.

Þotan fór í loftið frá borginni Surgut í Síberíu klukkan 7:55 í morgun að íslenskum tíma á leið til Sheremetyovo-flugvallarins í Moskvu en skömmu eftir flugtak fór einn farþegi á kreik, hafði í hótunum við áhöfninni og krafðist þess að flugvélinni yrði flogið til Afghanistan.

Þotan lenti í borginni Khanty-Mansiysk eftir að flugmönnunum tókst að sannfæra manninn að þeir þyrftu að lenda til þess að taka meira eldsneyti til að geta flogið til Afghanistan að ósk flugræningjans.

Flugvélin gaf frá sér kvakmerkið (squawk code) 7600 á ratsjá sem þýðir að fjarskiptasamband er bilað í stað 7500 sem táknar að viðkomandi flugvél hafi verið rænt.

Nokkrir farþegar tóku myndband af sérsveitarmönnum er þeir leiddu
flugræningjann frá borði

Fjölmennt lið lögreglu og sérsveitarmanna biðu flugvélarinnar á flugvellinum í Khanty-Mansiysk og var flugræninginn yfirbugaður um borð og leiddur úr flugvélinni í handjárnum.

Rússnesk stjórnvöld hafa gefið frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að flugræninginn hafi verið rússneskur karlmaður, Pavel Shapovalov að nafni, og hafi hann verið mjög ölvaður og hafi áður komist í kast við lögin vegna ráns, þjófnaðar og sölu á heróínu.

Talsmaður hryðjuverkavarna Rússlands segir að flugmennirnir hafi brugðist hárrétt við með því að þykjast ætla að verða við óskum flugræningjans og lenda flugvélinni á næsta flugvelli.

Um borð í flugvélinni voru 68 farþegar og sjö manna áhöfn og sakaði engann.



Flugferill þotunnar á Flightradar24.com sýnir hvar þotan lenti skömmu eftir flugtak



Myndband sem farþegi tók og setti á Instagram:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga