flugfréttir
Þotur kyrrsettar í flota Jet Airways vegna fjárhagsvanda
Boeing 737 þota Jet Airways
Átta farþegaþotur í flota indverska flugfélagsins Jet Airways hafa verið kyrrsettar vegna skulda þar sem fjárhagsstaða félagsins hefur farið versnandi.
Fram kemur að Jet Airways hafi ekki greitt leigugjöld af nokkrum þotum til flugvélaleigunnar GEGES (GE Capital Aviation Services) sem hefur kyrrsett átta Boeing 737 þotur.
Félagið segir að til standi að skila þremur Boeing 737 þotum til GECAS þar sem leigusamningur sé að renna út og þar að auki á að skila annarri þar sem leiga á hreyflum er útrunnin og þeirri fimmtu vegna tæknilegra vandamála.
Jet Airways segir að þrjár þotur fari aftur í umferð á morgun eftir stutt viðhald en félagið hefur yfir 120 Boeing 737
þotur í flota sínum og þar af fimm Boeing 737 MAX þotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.