flugfréttir
Metfjöldi farþega um Heathrow-flugvöll árið 2018
Frá Heathrow-flugvellinum í London
Aldrei hafa eins margir flugfarþegar farið um Heathrow-flugvöll í sögu flugvallarins líkt og árið 2018 þegar 80.1 milljón farþega fór um völlinn.
Þetta er aukning upp á 2.7% frá því árið 2017 er 78 milljónir farþega fóru um Heathrow-flugvöll sem er í 7. sæti
yfir stærstu flugvelli heims er kemur að farþegafjölda en stærstur er Hartfield-Jackson flugvöllurinn í Atlanta en árið 2018
fóru 107 milljónir farþega um þann flugvöll.
Í öðru sæti árið 2018 var flugvöllurinn í Peking sem fylgir flugvellinum í Atlanta fast á eftir með 100 millljónir farþega og
í þriðja sæti var flugvöllurinn í Dubai.
Tvöföld aukning varð á brottförum til Kína frá Heathrow-flugvelli í fyrra og bættust sex nýjar kínverskar borgir við
London Heathrow.
Til stendur að stækka Heathrow-flugvöll á næstunni en í júní í sumar verður birt ítarleg áætlun varðandi stækkun
flugvallarins sem hefur fengið grænt ljós frá ríkisstjórn Bretlands sem hefur samþykkt þriðju flugbrautina.
Til stendur að framkvæmdir við þriðju flugbrautina hefjist á næsta ári og er stefnt á að taka hana í notkun árið 2026.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.