flugfréttir

AirBaltic ætlar að ráða 50 flugvirkja á þessu ári

8. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:00

AirBaltic stefnir á að vera komið með 80 Airbus A220 þotur í flotann árið 2024

AirBaltic sér fram á að ráða um 50 nýja flugvirkja á þessu ári sem munu koma til með að starfa við viðhaldssstöð félagsins á flugvellinum í Riga.

AirBaltic ætlar sér að framkvæma sínar eigin C-skoðanir á Airbus A220 (CSeries) þotunum fyrir lok ársins en allar aðrar skoðanir hjá félaginu á Boeing 737 og Bombardier Q400 flugvélunum eru framkvæmdar innanhúss.

Hinsvegar þá ætlar félagið að hætta með Boeing 737 síðar á þessu ári og þá verða Q400 flugvélarnar farnar úr flotanum árið 2023 og er stefna félagsins að vera aðeins með Airbus A220 í flotanum innan 5 ár.

„Flugfélagið stefnir á að vera komið með um 80 Airbus A220-300 þotur í flotann fyrir árið 2024. Á sama tíma og flotinn er að stækka þá kallar það á mörg tækifæri bæði fyrir unga flugvirkja og eldri og reyndari“, segir Andris Vaivads, yfirmaður yfir viðhalds- tæknideild airBaltic.

AirBaltic segir að félagið sé að leita að flugvirkjum með mismunandi bakgrunn og er stefnt á að koma á fót flugvirkjanámsbraut þar sem airBaltic mun taka þátt í kosnaðinum við nám flugvirkja.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga