flugfréttir
Avianca hættir við pöntun í 17 þotur frá Airbus
Airbus A320neo þota Avianca
Kólumbíska flugfélagið Avianca hefur hætt við pöntun í 17 þotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni sem var hluti af pöntun í 100 þotur sem flugfélagið lagði inn til Airbus árið 2015.
Þá ætlar Avianca einnig að fresta afhendingum á 35 þotum til viðbótar frá Airbus um sex ár en til
stóð að afhenda þær flugvélar frá árinu 2020 til 2022 en í staðinn munu afhendingar hefjast árið 2026
og standa yfir til 2028.
Avianca hefur í dag fengið þrjár Airbus A320neo þotur og tvær A321neo þotur afhentar og taldi
flugfloti félagsins 190 flugvélar fyrir lok ársins 2018.
Flugfélagið hefur áður lýst því yfir að til standi bæði að hætta við hluta af pöntun í nýjar þotur
og breyta afhendingartíma til þess að auka lausafjárstöðu sína til þess að greiða niður skuldir.
Þá hefur Avianca tólf Embraer-þotur sem félagið ætlar sér að losa sig við á þessu ári í þeim
tilgangi að einfalda flotann og halda sig við færri flugvélategundir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.