flugfréttir
Air Greenland ætlar að skipta út Airbus A330 fyrir nýja breiðþotu
- Til stendur að endurnýja nánast allan flugflotann á Grænlandi
Airbus A330-200 breiðþota Air Greenland
Um sautján milljarðar króna munu fara í endurnýjun flugflota grænlenska flugfélagsins Air Greenland á næstu árum en meðal annars stendur til að skipta út Airbus A330-200 breiðþotu félagsins fyrir nýrri þotu.
Airbus A330 breiðþota félagsins er eingöngu notuð í áætlunarflug félagsins milli Kangerlussuaq og Kaupmannahafnar
en þotan er orðin 21 árs gömul.
„Það á að afskrifa Airbus-þotuna. Líftími hennar sem farþegaþota er að nálgast endalokin en hefðbundin líftími
flugvélar af þessari gerð eru 25 ár áður en þeim er oft breytt í fraktflugvél“, segir Jacob Nitter Sørensen, framkvæmdarstjóri
Air Greenland.
Super King Air flugvél Air Greenland
Air Greenland hefur ekki ákveðið hvaða flugvél verði fyrir valinu í stað A330-200 og hefur verið ákveðið að bíða með
ákvörðunina þangað til að flugvallarframkvæmdum lýkur við gerð nýrra flugvalla í Nuuk og í Ilulissat.
Þá stendur einnig til að endurnýja aðrar minni flugvélar í flota Air Greenland og þyrlna á næstu þremur árum og þá
á einnig að taka inn nýjar sjúkraflugvélar en Air Greenland mun fá eina nýja Super King Air sjúkraflugvél í flotann í september.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.