flugfréttir
117 flugvélar í kyrrsetningu hjá indverskum flugfélögum
- Um fimmtungur alls flugflotans á Indlandi á jörðu niðri
Boeing 737 þotur Jet Airways
Alls eru í dag 117 farþegaþotur í flota fjögurra flugfélaga á Indlandi kyrrsettar og eru þær ekki að fljúga þessa daganna vegna ýmissa ástæðna.
Helstu flugfélög Indlands eru IndiGo, Air India, Jet Airways, GoAir, SpiceJet, Air Vistara og Air Asia og hafa þessi flugfélög 674 flugvélar í flota sínum en fjögur af þessum félögum, Jet Airways, SpiceJet, Air India og GoAir hafa 117 þotur sem eru kyrrsettar eða alls fimmtungur indverska flugflotans.
Þetta gæti haft þær afleiðingar að flugfélögin neyðist til þess að hækka fargjöld sín og það
allverulega en Jet Airways hefur þurft að kyrrsetja 81 þotu vegna fjárhagserfiðleika þar sem
félagið hefur ekki náð að greiða leigugjöld af flugvélunum til flugvélaleigufyrirtækja.
SpiceJet hefur kyrrsett tólf Boeing 737 MAX þotur í kjölfar flugslysanna tveggja í Eþíópíu og
Indónesíu líkt og önnur flugfélög sem hafa 737 MAX í flotanum en félagið hefur 75 flugvélar í flota
sínum.
GoAir, sem hefur 49 flugvélar í sínum flota, hefur kyrrsett sex Airbus A320neo flugvélar
vegna vandamála með PW1100 hreyfilinn en það vandamál hefur varið í meira en ár.
Þá eru sautján þotur í flota ríkisflugfélagsins Air India úr umferð á jörðu niðri vegna
viðhaldsmála en Air India, Air India Express og Allicance Air hafa til samans 178 flugvélar
í flota félaganna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.