flugfréttir

Lufthansa íhugar stóra pöntun í Boeing 737 MAX

- Valið stendur á milli Boeing 737 MAX og Airbus A320neo

27. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:09

Flugfloti Lufthansa

Þýska risaflugfélagið Lufthansa er að íhuga að leggja inn stóra pöntun í annaðhvort Boeing 737 MAX eða Airbus A320neo en félagið ætlar að nota þoturnar til að stækka flugflotann og skipta út eldri flugvélum.

„Við höfum ekki misst neitt traust á Boeing eftir tvö flugslys er varðar Boeing 737 MAX“, sagði Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa, á blaðamannafundi.

„Þeir hafa smíðað glæsilegar flugvélar á síðastliðnum áratugum og ég er viss um að þeir muni laga það sem þarf að laga“, bætir Spohr við.

Lufthansa var með Boeing 737 þotur í flotanum í marga áratugi

Lufthansa segir að ákvörðunin verði tekin á næsta ári og sé það Boeing 737 MAX og Airbus A320neo sem koma til greina. Lufhansa hefur engar Boeing 737 MAX þotur í flota sínum og heldur enga Boeing 737 þotur eins og er.

Voru með margar Boeing 737 þotur á árum áður

Boeing 737 er samt ekki ókunn félaginu en Lufthansa var fyrsta flugfélagið í heimi til að fljúga fyrstu Boeing 737 þotunni er hún kom á markað fyrir hálfri öld síðan eða þann 10. febrúar árið 1968 og var sú þota af gerðinni Boeing 737-100.

Lufthansa hafði margar þotur af gerðinni Boeing 737 í flota sínum næstu 48 árin eftir að félagið flaug fyrsta flugið með Boeing 737-100 og þar á meðal af gerðinni Boeing 737-200, -300, -400 og Boeing 737-500 en félagið hætti með Boeing 737-500 og 737-300 árið 2016.

„Er kemur að Boeing og bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) þá held ég að Bandaríkin og framleiðandinn muni ekki gefa neitt eftir og ekki hætta fyrr en þeir hafa komist að því hvað olli þessum flugslysum og lagfæra þau atriði“.

Allur flugfloti Lufthansa, er kemur að meðalstórum farþegaþotum, samastendur hinsvegar af Airbus-þotum af gerðinni Airbus A32o, A320neo og Airbus A321.

Félagið hefur hinsvegar 30 júmbó-þotur í flotanum af gerðinni Boeing 747-400 og Boeing 747-8 og á einnig von á tuttugu Boeing 777X þotum og tuttugu Dreamliner-þotum af gerðinni Boeing 787-9.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga