flugfréttir
28 börn og fjölskyldur þeirra fengu styrk Vildarbarna
- 677 fjölskyldur hafa notið stuðnings úr sjóðnum frá stofnun hans
Á myndinni eru styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við úthlutunina í gærmorgun
28 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega eitt hundrað manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóði Vildarbarna Icelandair í gær en alls hafa 677 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans fyrir 16 árum og úthlutunin í gær var sú 32. í röðinni.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún situr í stjórn Vildarbarna Icelandair og er Sigurður formaður stjórnarinnar. Vigdís Finnbogadóttir er verndari sjóðsins.
Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum eða börnum sem búa við erfið skilyrði, og fjölskyldum þeirra, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á.
Við afhendinguna í morgun skemmti Flugfreyjukór Icelandair viðstöddum með söng. Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarið afhentu Sambíóin börnunum bíómiða.
Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair.
Einnig koma til frjáls framlög og viðburðir. Hjónin Peggy Helgason og Sigurður Helgason gáfu sjóðnum 20 milljónir sem sérstakt framlag í ár til þess að efla styrk sjóðsins enn frekar. "Það er okkur mikil ánægja að geta styrkt hinu góðu starfsemi Vildarbarna, sem við höfum tekið þátt í með mikilli ánægju frá upphafi" sögðu hjónin við afhendinguna í morgun.
Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.