flugfréttir

TUI íhugar að hætta við Boeing 737 MAX þoturnar

- Þurfa að koma MAX þotunum aftur í umferð til að fyrirbyggja enn meira tap

20. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:54

Boeing 737 MAX þota TUI í lendingu á flugvellinum í Brussel í nóvember í fyrra

Flugfélaga- og ferðasamsteypan TUI hefur tilkynnt að allt stefni í að afkoma flugfélagsins TUI verði frekar slæm eftir fyrri helming ársins og hefur fyrirtækið varað fjárfesta við því að seinni helmingur ársins gæti orðuð enn verri ef Boeing 737 MAX þoturnar fara ekki að hefja sig á loft á ný.

Fimm TUI flugfélög fljúga fyrir TUI Group og hafa þessi félög til samans fengið 15 Boeing 737 MAX þotur afhentar og á félagið von á átta til viðbótar á næstunni.

TUI Airways í Bretlandi hefur fengið 6 Boeing 737 MAX þotur afhentar en fimm þotur eru kyrrsettar í Manchester og ein á Tenerife. Þá hefur TUI fly Belgium fengið fjórar 737 MAX þotur, TUI fly í Hollandi þrjár og TUI fly Nordic tvær Boeing 737 MAX þotur.

TUI Group segir fyrirtækið verði að taka ákvörðun varðandi Boeing 737 MAX þoturnar en núverandi rekstraráætlun miðast við að kyrrsetningunni verði aflétt þann 31. maí og verði þoturnar að verða komnar aftur í loftið um miðjan júní til að fyrirbyggja enn frekari taprekstur á síðari hluta ársins.

Stjórnklefinn í Boeing 737 MAX þotu TUI fly Belgium

TUI segir að til greina komi að hætta hreinlega við pöntunina í MAX þoturnar og gera ráð fyrir annarri flugvélategund sem hluta af framtíðarstefnu flugflotans ef kyrrsetningin dregst á langinn.

Taprekstur TUI á fyrstu sex mánuðum ársins 2019 eru 41 milljarður króna en á sama tíma í fyrra nam tapið 23 milljörðum frá janúar fram í júní.

Fyrirtækið segir einnig að ein ástæða fyrir verri afkomu sé vegna of mikils framboð á flugsætum til Spánar en eftir að ferðamannaiðnaðurinn til Túnis og Tyrklands hrundi árið 2016 hefur orðið enn meira ásókn ferðamanna til Spánar og eru of mörg flugfélög sem fljúga þangað í dag.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga