flugfréttir

JetBlue pantar Airbus A321XLR

21. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:52

JetBlue mun fá fyrstu Airbus A321XLR þotuna afhenta árið 2023

Bandaríska flugfélagið JetBlue hefur bæst í hóp þeirra flugfélaga sem hafa pantað Airbus A321XLR þotuna en félagið hefur ákveðið að breyta pöntun í þrettán Airbus A320neo þotur yfir í A321XLR.

JetBlue mun fá fyrstu A321XLR þotuna afhenta árið 2023 og segir Robin Hayes, framkvæmdarstjóri félagsins, að með þessu gefist tækifæri til þess að fljúga á nýja markaði yfir hafið til Evrópu.

„Með þeirri ótrúlegri drægni sem Airbus A321XLR býr yfir þá getum við flogið til enn fleiri áfangastaða yfir hafið og erum við að hugsa um Evrópu sem í dag er eingöngu hægt að ferðast til með mjög háum fargjöldum“, segir Hayes.

Með pöntuninni á JetBlue því von á að fá alls 85 þotur frá Airbus úr A320neo fjölskyldunni sem samanstendur af 59 þotum af gerðinni A321neo, þrettán A321LR þotur og þrettán A321XLR.

JetBlue á von á að fá fyrstu Airbus A321neo þotuna í næsta mánuði og gerir félagið ráð fyrir því að hefja flug frá Ameríku til Amsterdam, London, Dublin og til Parísar.

„XLR-týpan opnar möguleika á því að geta flogið frá norðausturhluta Bandaríkjanna til áfangastaða í sunnanverðri Evrópu og í miðhluta álfunnar og í norðurhluta Evrópu“, segir í tilkynningu frá JetBlue.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga