flugfréttir
43 atvinnuflugnemar útskrifast frá Flugakademíu Keilis
- 71 hafa lokið atvinnuflugnámi hjá Keili á þessu ári
Útskriftarnemandir fjörutíu og þrír við athöfnina sem fram fór í Andrews Theatre
Flugakademía Keilis útskrifaði 43 atvinnuflugnema þann 14. júní sl. við athöfn sem fram fór í Andrews Theater í Ásbrú í Reykjanesbæ.
Með útskriftinni hafa samtals 71 atvinnuflugnemar lokið bóklegu námi í skólanum það sem af er ársins og samtals 289 nemendur frá upphafi skólans árið 2009.
Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíunnar, flutti ávarp en dúx var Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir sem lauk náminu með 9,54 í meðaleinkunn og fékk hún bókagjöf frá Icelandair.
Ræðu útskriftarnema flutti Hrannar Páll Kristbjargarson.
Þetta var fyrsta brautskráning atvinnuflugnema Keilis eftir að skólinn sameinaðist Flugskóla Íslands fyrr á árinu en eftir sameininguna verður til einn öflugasti flugskóli á Norðurlöndum
með á rúmlega tuttugu kennsluvélar og á fjórða hundrað flugnemendur.
Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir var dúx skólans og hlaut hún meðaleinkunn upp á 9,54
Með útskrift Flugskóla Íslands, sem fór fram í lok maí, hafa samtals 126 atvinnuflugnemar lokið bóklegu námi á Íslandi það sem af er ársins.
Áfangaskipt og samtvinnað atvinnuflugnám hefst næst í byrjun september. Námið verður í boði á höfuðborgarsvæðinu og á Ásbrú, auk þess sem hægt verður að leggja stund á hluta bóklegs náms í fjarnámi.
Rétt eins og áður mun verkleg flugkennsla fara fram á bæði alþjóðaflugvellinum í Keflavík og Reykjavíkurflugvelli, auk þess sem skólinn mun efla starfsstöðvum á landsbyggðinni líkt og unnið hefur verið að undanfarið, meðal annars á Selfossi og Sauðárkróki.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.