flugfréttir

Úrskurður Landsréttar ómerktur í máli Isavia og Aer Lease

- Hæstiréttur vísar málinu aftur til Landsréttar

28. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:08

TF-GPA á Keflavíkurflugvelli

Niðurstaða Hæstiréttar liggur nú fyrir í máli Isavia og flugvélaleigunnar Air Lease Corporation vegna vörslu á Airbus A320 þotu í eigu flugvélaleigunnar en þotan var kyrrsett á Keflavíkurflugvelli eftir gjaldþrot WOW air vegna skuldar félagsins við Isavia.

Hæstiréttur hefur með því ómerkt úrskurð Landsréttar sem hafnaði í maí kröfum Air Lease um að fá að afhenta Airbus-þotuna sem ber skráninguna TF-GPA og hefur málinu verið vísað aftur til Landsréttar.

Með niðurstöðu Hæstaréttar í innsetningarmáli vegna flugvélarinnar TF-GPA, í eigu flugvélaleigunnar ALC, telur Isavia að rétturinn sé fyrst og fremst að bregðast við þeirri staðreynd að ALC kærði ekki úrskurð héraðsdóms til Landsréttar og meðferð málsins fyrir Landsrétti eftir það.

Í tilkynningu frá Isavia segir að sú staðreynt að Air Lease kærði ekki úrskurð héraðsdóms til Landsréttar hafi falið í sér yfirlýsingu ALC um að félagið væri sammála kröfum og röksemdum Isavia. Við þær aðstæður bar Landsrétti að verða við óbreyttum kröfum Isavia í málinu og hafna þegar af þeirri ástæðu innsetningu, eins og fram kemur í niðurstöðu Hæstaréttar.

Isavia er þeirrar skoðunar að dómur Hæstaréttar staðfesti efnislega afstöðu Landsréttar til túlkunar á beitingu 136. gr. laga um loftferðir. Málinu hefur nú verið vísað aftur til Landsréttar. Vænta má að Landsréttur taki það til meðferðar og staðfestir kröfur Isavia eins og þær lágu fyrir Landsrétti, auk ákvörðunar um málskostnað.

Flugvélin TF-GPA er áfram kyrrsett þar til niðurstaða fæst í málið. Í millitíðinni vill Isavia ítreka að eigandi vélarinnar getur fengið hana afhenta ef skuld WOW air er greidd eða ef gild trygging er lög fyrir henni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga