flugfréttir
Fyrsta bandaríska félagið fellir niður flugleið vegna 737 MAX
- American Airlines mun hætta að fljúga á milli Dallas og Oakland
Kyrrsettar Boeing 737 MAX þotur í flota American Airlines
American Airlines er fyrsta bandaríska flugfélagið til að leggja niður flugleið í leiðarkerfinu vegna kyrrsetningu á Boeing 737 MAX þotunum.
American Airlines hefur tilkynnt að félagið muni hætta að fljúga frá Dallas til Oakland en félagið er það eina
sem flýgur á milli þessara tveggja borga.
Næstkomandi laugardag mun félagið fljúga síðasta flugið milli Dallas og Oakland og verður það flug flogið
með þotu af gerðinni Boeing 737-800.
Talsmaður félagsins bendir á að farþegum stendur til boða að fljúga í staðinn frá San Francisco eða San Diego, eða
með millilendingu í Phoenix, en að öðru leyti geta þeir fengið flugið endurgreitt.
American Airlines hefur þurft að fella niður 115 flugferðum á dag frá því að Boeing 737 MAX var kyrrsett um
miðjan marsmánuð á þessu ári og hefur félagið þess í stað hagrætt flugáætlun sinni en þetta er í fyrsta
sinn sem bandarískt flugfélag ákveður að leggja niður flugleið milli tveggja borga vegna vandamálsins með
Boeing 737 MAX þoturnar.
American Airlines hefur 24 Boeing 737 MAX þotur sem eru kyrrsettar en félagið gerir ekki ráð fyrir að geta
nota þær til farþegaflugs fyrr en í fyrsta lagi í september en miklar líkur eru á því að það eigi eftir að seinka enn frekar
og þessvegna er nær dregur jólum.
Þess má geta að Icelandair tilkynnti í júní að félagið myndi hætta að fljúga til Tampa í Flórída
en ástæða þess er einnig vegna kyrrsetningu á Boeing 737 MAX.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.