flugfréttir

Nýtt met: 37.228 flugferðir um Evrópu á einum degi

- Um 3,3 milljón farþega flugu um evrópska lofthelgi þann 28. júní síðastliðinn

5. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:11

Skjáskot af Flightradar24.com þann 28. júní sl.

Nýtt met var sett í flugumferð um Evrópu þann 28. júní sl. er 37.228 flugferðir fóru um evrópska lofthelgi þann daginn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá evrópsku flugstjórnarstofnuninni Eurocontrol og kemur fram að með þessu hafi gamla metið verið slegið frá
7. september 2018 þegar 37.101 flugferð fór um evrópska lofthelgi á einum degi.

„Við vinnum í nánu samstarfi með samstarfsaðilum okkar um alla Evrópu til að koma til móts við aukna flugumferð og til að tryggja að flæði flugumferðarinnar gangi fyrir sig með öruggum hætti“, segir Iacopo Prissinotti hjá Eurocontrol.

Frá stjórnstöð Eurocontrol í Belgíu

Yfir 11 milljón flug fóru um evrópska lofthelgi árið 2018 með yfir einn milljarð farþega innanborðs en að meðaltali eru farnar 30.168 flugferðir á hverjum degi um háloftin yfir Evrópu.

Samkvæmt tölfræði Eurocontrol er talið að næsta met gæti fallið þann 6. september næstkomandi en einnig hafa síðustu 3 dagarnir í lok júnímánaðar verið annasömustu dagar ársins í evrópskri lofthelgi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga