flugfréttir
Donald Trump fjallaði í ræðu sinni um flugvelli árið 1775
- Vandræðaleg mistök í þjóðhátíðarræðu í Washington í gær
Donald Trump, heldur þjóðhátíðarræðu við Lincoln-minnisvarðann í Washington í gær að tilefni að þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna
Donald Trump, Bandaríkjaforseta, varð á í messunni í ræðu sinni í gær að tilefni þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna er hann rifjaði upp baráttu Bandaríkjanna í sjálfstæðisstríðinu og sagði að bandaríski herinn hefði náð yfirráði yfir flugvöllum frá breska hernum árið 1775.
Flugið á þó ekki það langa sögu því árið 1775 voru ennþá 128 ár þangað til að Wright-bræður flugu fyrsta
flug sögunnar og því hæpið að búið var að leggja flugvelli þegar ekki var búið að finna
upp flugvélina sjálfa.
Trump fór með klukkustunda langa ræðu við hátíðarhöld við Lincoln-minnisvarðann í Washington í gær
þar sem hann stiklaði á stóru í gegnum sögu bandarísku þjóðarinnar.
Mistökin í ræðunni Bandaríkjaforsetans þóttu mjög vandræðarleg
Er hann kom að virðingarvotti sínum í garð bandaríska hersins sagði Trump: „Í júní árið 1775 kom þingið á
fót samhæfðum her í Boston og í New York sem hóf sig til lofts og tók yfir flugvelli og gerði allt sem í þeirra
valdi stóð í baráttunni“.
Flestir gestanna, sem voru viðstaddir ræðuna, gerðu sér samt grein fyrir því að flugvélar voru ekki til á þessum tíma og voru því án efa margir sem hafa brosið eða hlegið eftir að hafa heyrt þennan hluta ræðunnar hjá forsetanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.